Fréttir
Aðalfundur Hjólabræðra verður haldin 01.03.2010 kl:19:00 í Hjólahöllinni.
Ljósanótt 2009

Mæting inn við
í Njarðvík laugardaginn 5. september kl. 12:30. Boðið
verður upp á grillaðar pylsur og gos frá kl. 13:00 til 14:00 í boði
.
Farið verður í hópkeyrslu frá Olís kl.14.05 og hjólað Garðskagahringinn sem endar á planinu hjá Nettó í Njarðvík. Þaðan verður lagt af stað kl.15.00 stundvíslega í hópkeyrslu niður Hafnargötu og endað á SBK planinu eins og undanfarin ár.
Hvað verða mörg hjól í ár?
Vonumst eftir að sem flestir sjái sér fært að mæta.
ALLIR VELKOMNIR.
26/08/2009
Tilkynning vegna Yamaha umboðsins.
Arctic Trucks verður með Yamaha tæki til sýnis og sölu í verslun sinni, auk þess að bjóða varahluta- og viðgerðarþjónustu.
Þessa dagana er unnið að því að breyta verslun Arctic Trucks við Klettháls og einnig er uppsetning verkstæðis í fullum gangi.
Unnið er að því að koma upp varahlutalager auk þess sem sérpantanir á varahlutum og tækjum hafa þegar hafist. Arctic Trucks hefur ráðið til sín þrjá starfsmenn sem störfuðu fyrir Yamaha hjá Mótormax, þá Ísleif Þorbjörnsson, Stefán Hjaltalín Jóhannesson og Björgvin Svein Stefánsson en þeir munu verða í fararbroddi við að byggja upp framúrskarandi þjónustu við Yamaha eigendur.
Arctic Trucks hefur fengið umboð fyrir fyrir nokkur tengd vörumerki sem verða til sölu í versluninni við Klettháls.
Þar má nefna vörur frá Frank Thomas, Hostettler IXS fatnað, Nazran fatnað, L-Fashion Group Rukka fatnað , Marushin hjálma , Nolan / X-lite hjálma , Motrax aukahluti fyrir hjól og fleira.
Sælt veri fólkið,
Er ekki tilvalið að skella sér í smá æfingarakstur fyrir ljósanótt og mæta á Sandgerðisdaga ?
SBK planið er þar sem við höfum enda hópkeyrsluna á ljósanótt ef einhver veit ekki hvar það er.
Með hjólakveðja,
Ernir
Mæting á SBK planið kl. 12.30 laugardaginn 29.ágúst. Lagt verður afstað kl. 13.00.
Þegar við komum til Sandgerðis liggur leiðin niður að hátíðarsvæðinu við höfnina.
Nánari upplýsingar um dagskrá er að finna á http://sandgerdisdagar.245.is/
Með kveðju,
Stjórn og ferðanefnd JAð kaupa hjól
14.07.2009 MC Skál í samstarfi við Tíuna munu halda Hjóladaga á Akureyri 24-26 júlí. Verða þeir með svipuðu sniði og í fyrra. Reynt verður að hafa ýmislegt á boðstólum á þessum dögum sem ætti að höfða til sem flestra en svo er líka bara gaman að koma saman og hittast. Dagskrá Hjóladaga er: Föstudagur 24/7 18:00 Hjóladagar settir á svæði Mótorhjólasafns Íslands þar sem verður grillað ofl. 22:00 Tónleikar til styrktar Mótorhjólasafni Íslands í Sjallanum Laugardagur 25/7 12:00 Hátíð á plani ÚA þar sem verða sölu/kynningarbásar swap meat, leikir og þrautir, burn out, grill, hoppukastali, omfl. 20:00 Hátíðarkvöldverður í sjallanum 23:00 Stórdansleikur í Sjallanum með Sniglabandinu. %